piątek, 10 sierpnia 2007

47. Kolęda - Cicha noc

HLJÓÐA NÓTT

Hljóða nótt, heilaga nótt.
Hvílir barn vært og rótt.
Betlehemsstjarnan með blikinu, skær,
boðar um jörðina tíðindin kær
.:,: Mikil er himinsins náð.:,:

Hljóða nótt, heilaga nótt.
Heimi í sefur drótt.
Víða þó hirðarnir völlunum á
vaka í myrkrinu fé sínu hjá
;:,: beðið er sólar og dags. :,:

Hljóða nótt, heilaga nótt.
Himnesk skín ljósagnótt.
Engillinn fagur með orðin svo hlý
ávarpar mennina rökkrinu í
::,: Lausnarinn fæddur nú er! :,:

Hljóða nótt, heilaga nótt.
Hjarðmenn burt fara skjótt.
Blíðasti drengur með blessun og frið
brosir í jötunni gestunum við
,:,: helgandi fjárhúsið lágt. :,:

Hljóða nótt, heilaga nótt.
Hjörtu glöð bærast ótt.
Vitringar, komnir um víð ustu lönd,
vegmóðir leggja í frelsarans hönd
:,: reykelsi, myrru og gull. :,:

Hljóða nótt, heilaga nótt.
Háleit orð spyrjast fljótt.
Krjúpa í lotningu kotið og höll.
Konungi alheimsins fagnar þjóð öll
.:,: Guði sé vegsemd og dýrð! :,:

Brak komentarzy: